Leigubíll frá Keflavíkurflugvelli (KEF) til Reykjavíkur - Einkaakstur bókaður fyrirfram
Keflavíkurflugvöllur til Reykjavíkur - Einkaakstur
Bókaðu Leigubíl frá Keflavík til Reykjavíkur
Hagkvæmur flugvallarakstur
Einkaflugvallarakstur okkar er hagkvæmur og þægilegur kostur fyrir þá sem eiga komuflug á Keflavíkurflugvöll (KEF). Þú velur komutíma og bílstjórinn sækir þig á flugvöllinn, aðstoðar þig með farangur þinn og keyrir þig beint heim að dyrum innan höfuðborgarsvæðisins.
Bókað og borgað fyrirfram
Þar sem Snæland Travel er ekki leigubílaþjónusta tryggir þú fyrirfram bókun og greiðslu svo þú veist hver heildarkostnaður akstursins er og getur treyst á að bílstjóri sæki þig á réttum tíma. Við bjóðum upp á samkeppnishæf verð í samanburði við leigubílaþjónustur.
Sparaðu tíma og peninga
Engin bið eftir áætluðum flugvallarrútum og enginn aukakostnaður við leigubíl frá stoppistöð og heim. Þegar þú athugar hagkvæmustu verð fyrir flugvallarskutl skaltu ganga úr skugga að verðin séu uppfærð og að næsta stoppistöð sé þægilega staðsett frá heimili. Einnig hvað er innifalið í þjónustunni.
Með því að bóka einkaakstur hjá Snæland Travel greiðir þú fyrir þægindi og akstur beint heim að dyrum.
Breyting á flugtíma
Þú gefur upp flugnúmerið þitt og við fylgjumst með áætluðum komutíma flugsins. Ef tafir verða á komuflugi þínu á Keflavíkurflugvöll getum við boðist til að fresta akstri án aukakostnaðar.
Afpöntunarreglur
Ef þú afpantar með að minnsta kosti 24 klst fyrirvara endurgreiðum við alla upphæðina með ánægju. Allar afpantanir innan 24 tíma verða gjaldfærðar að fullu.
Viðbótarupplýsingar
Athugið að sex manna hópar eða fleiri kunna að verða fyrir áhrifum vegna íslenskrar löggjafar sem banna notkun stærri farartækja á sumum götum í miðbæ Reykjavíkur. Í slíkum tilfellum gæti þurft að skutla þér á strætóstoppistöð næst heimili þínu eða hóteli.
Hvað er innifalið
- Einkabíll sækir þig á Keflavíkurflugvöll (KEF)
- Skutl heim að dyrum á höfuðborgarsvæðinu
- Við fylgjumst með komutíma flugsins
Gott að vita
- Aksturstími ~45 mínútur
- Hægt er að bóka 2 klst viðbótarstopp í Bláa Lóninu
- Aðgengilegt fyrir þá sem eru með takmarkaða hreyfigetu - vinsamlega sendu okkur beiðni
- Ungbarna- og barnasæti í boði - viðbót við bókun hér að ofan
Viðbótarstopp í Bláa Lónið
Við bjóðum þér að bæta við slökun eftir langt flug með tveggja tíma viðbótarstoppi í Bláa lóninu. Bílstjórinn gætir farangursins á meðan þú slakar á og keyrir þig svo beint heim að dyrum eftir stoppið.
Ertu á leið til Keflavíkurflugvallar frá Reykjavík?
Við bjóðum einnig leigubíl til Keflavíkurflugvallar.
Hvað kostar leigubíll frá Keflavíkurflugvelli?
Við bjóðum samkeppnishæf verð í samanburði við leigubílaakstur frá Keflavíkurflugvelli til höfuðborgarsvæðisins. Þegar þú bókar greiðir þú eitt fast verð svo þú veist hver kostnaðurinn er fyrirfram og veist hvenær bílstjórinn mætir að sækja þig. Þú getur einnig bætt við viðbótarstoppum fyrir farþegar á sanngjörnu verði.
Við verðsamanburð á leigubílum frá Keflavík er mikilvægt að athuga að verð á flugvallarskutlum séu uppfærð og einnig hvað er innifalið í þjónustunni. Þegar þú bókar einkabíl með Snæland Travel greiðir þú fyrir einkabílstjóra sem sækir þig á Keflavíkurflugvöll og skutlar þér beint heim að dyrum. Einnig fylgjum við með áætluðum komutíma til að koma til móts við breytingar á flugi og bjóðum þér að bæta við stoppi í Bláa Lóninu og viðbótarstoppum á höfuðborgarsvæðinu á hagkvæmu verði.
Hvað er verð á bílastæðum á Keflavíkurflugvelli?
Þegar þú bókar flugvallarskutl með einkabíl Snæland Travel getur þú áhyggjulaust skilið bílinn eftir heima og sleppt bílastæðagjöldum á Keflavíkurflugvelli. Þú getur athugað verð á bílastæðum á Bílastæðaverðskrá Keflavíkurflugvallar.
No affiliate links and no commission. That's how we keep low prices for you
Here are a few quotes from our customers on TripAdvisor.
"Perfectly on time and we had the same driver both ways, which was nice. Really friendly driver who gave us plenty of local information without being over the top. Good sense of humour so made the 45 min trip very pleasant indeed. Plenty of room for passangers and luggage"
Peter C
We took the Snaeland Travel shuttle from our hostel in Reykjavik to the airport in Keflavik, and although we chose it because we found it to be more convenient and a better value than the bus, we were pleasantly surprised when