Rekið af Snæland GRÍMSSON EHF.
Leiðandi fyrirtæki í ferðaþjónustu

Rekið af Snæland GRÍMSSON EHF.
Leiðandi fyrirtæki í ferðaþjónustu

Fjölskyldufyrirtæki með meira en 80 ára reynslu af ferðaþjónustu
Snæland Travel er íslenskt fjölskyldufyrirtæki með yfir 80 ára reynslu af ferðaþjónstu. Við höfum það að leiðarljósi að veita viðskiptavinum okkar örugga, þægilega og áreiðanlega þjónustu. Ásamt flota af fyrsta flokks farartækjum sem við endurnýjum reglulega teflum við fram samhentum hópi starfsfólks með umtalsverða reynslu og þekkingu á sínu sviði.
_small.jpg)
Þjónusta frá og heim að dyrum
Forðist biðraðir og aðrar tafir eftir bestu getu með því að bóka þjónustu frá heimili að flugvelli og til baka. Bílstjórinn sækir þig heim eða bíður með skilti í komusal flugstövarinnar og aðstoðar með farangur þegar komið er á áfangastað. Athugið að brottför út á flugvöll ætti ekki að vera seinna en um það bil þremur tímum fyrir flug.
Þegar fyrirhuguð er heimsókn í Bláa Lónið fyrir flug þá bætast tveir tímar við og rétt er því að áætla brottför frá Reykjavík fimm tímum fyrir flug.
Þegar fyrirhuguð er heimsókn í Bláa Lónið fyrir flug þá bætast tveir tímar við og rétt er því að áætla brottför frá Reykjavík fimm tímum fyrir flug.
Aksturstíminn til Keflavíkurflugvallar tekur um 45 mínútur og farþegar ættu að vera mættir á flugvöllinn að minnsta kosti 2 klukkustundum fyrir brottför.




